Prjónastund á Miðstöðinni
Boðið verður upp á prjónastundir á föstudögum frá kl. 13:30-15:30 þar sem þátttakendur koma með það sem þeir hafa á prjónunum.
Snertitáknmálsnámskeið
Samskiptamiðstöð fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta heldur námskeið í snertitáknmáli fyrir einstaklinga með samsetta heyrnar- og sjónskerðingu (daufblindu) og aðila tengda þeim.
Námskeiði fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla lokið.
Dagana 13.-14. ágúst stóð Þjónustu- og þekkingarmistöðin fyrir námskeiði fyrir starfsfólk leik og grunnskóla.
Áhugavert verkefni í tengslum við kennslu punktaleturs.
Síðastliðinn vetur stóðu Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin og leikskólinn Sólbakki fyrir mjög áhugverðu verkefni í tengslum við kennslu punktaleturs fyrir 4 ára gamlan blindan dreng.
Dagana 4.-6. maí var haldin norræn ráðstefna fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri.
Dagana 4. til 6. maí síðastliðinn var haldin norræn ráðstefna fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var pólski sérfræðingurinn Boguslaw Marek sem hefur hannað kennsluefni fyrir blind og sjónskert börn sem kallast „Hungry fingers“.
Námskeið í punktaletri og notkun skjálestrarbúnaðar
Vikuna 8.-12 júní stendur Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin fyrir námskeiði í punktaletri og notkun skjálestrarbúnaðar fyrir nemendur. Námskeiðið verður haldið að Suðurlandsbraut 12, annarri hæð, í húsnæði Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Norræn ráðstefna dagana 4.-6. maí fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri
Dagana 4. til 6. maí næstkomandi verður haldin á Íslandi norræn ráðstefna fyrir ráðgjafa blindra og sjónskertra barna á leikskólaaldri. Þetta er í fyrsta sinn í 30 ára sögu ráðstefnunnar að hún er haldin á Íslandi og hana sækja 50 ráðgjafar frá öllum Norðurlöndunum.
Huld Magnúsdóttir nýr forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa Huld Magnúsdóttur forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, til næstu fimm ára frá 1. mars næstkomandi.
Heimsókn félagsmálaráðherra á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Nýskipaður félagsmálaráðherra, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, heimsækir Þjónustu- og þekkingar-miðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga í dag, 6. febrúar, og opnar nýja og glæsilega heimasíðu miðstöðvarinnar, www.midstod.is.
Menntunarsjóður blindrakennslu auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Sed semper. Aliquam quis sapien. Nulla ligula arcu, malesuada nec, molestie id, posuere ac, enim. Aenean congue, libero vitae sodales tristique, purus magna fermentum est, sed elementum ipsum felis in pede. Morbi placerat, ante non bibendum dignissim, sapien sem congue tortor, at varius lorem eros ac mauris. Donec eget nisl a ligula tempor tristique. Pellentesque habitant morbi tristique senectus et netus et malesuada fames ac turpis egestas. Ut nec mauris. Vivamus id felis a enim molestie dignissim. Suspendisse sapien magna, ullamcorper ut, lacinia ac, bibendum vitae, nisi. Donec venenatis nunc et odio pulvinar ornare. Donec nec diam sit amet lectus hendrerit lacinia. Nullam ante justo, eleifend et, imperdiet vel, laoreet sit amet, tortor. Sed venenatis velit consectetur augue.
Ráðgjafi í málefnum daufblindra hefur tekið til starfa
Guðný Katrín Einarsdóttir hefur verið ráðin sem ráðgjafi í málefnum daufblindra.
Fljótlegt, hollt og gott
Sólveig Eiríksdóttir, Solla í Grænum kosti, kennir þátttakendum að útbúa holla og góða rétti á einfaldan og fljótlegan hátt.
Opinn fundur, þriðjudaginn 18. ágúst
Þessa dagana er stödd hér á landi Gwyneth McCormack sjálfstætt starfandi breskur kennsluráðgjafi blindra og sjónskertra. Að því tilefni mun Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga standa fyrir opnum fundi …
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin óskar eftir kennsluráðgjafa til starfa.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar eftir að ráða til starfa kennsluráðgjafa fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga.
Mikið fjör á námskeiði í punktaletri og notkun skjálestrarbúnaðar
Nú er nýlokið námskeiði í punktaletri og notkun skjálestrarbúnaðar fyrir nemendur. Námskeiðið tókst í alla staði mjög vel og einkenndist af áhugasemi, jákvæðni og gleði eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Starf ráðgjafa fyrir daufblinda einstaklinga
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar eftir að ráða til starfa ráðgjafa fyrir daufblinda einstaklinga.
Umsókn um styrki úr Menntunarsjóði til blindrakennslu 2009
Auglýst er eftir styrkjum til sérnáms í kennslu og ráðgjöf við blinda og sjónskerta einstaklinga fyrir árið 2009.
Framleiðsla lesefnis í fullum gangi
Frá áramótum hefur Framleiðsludeild sent frá sér 111 titla á punktaletri, stækkuðu letri og rafrænu formi.
Tilkynning um breytingu á þjónustu
Frá áramótum mun Sjónstöð Íslands hætta allri sölu á smáum hjálpartækjum, eins og úrum, spilum og þess háttar.
Myndir frá skreytinga- og konfektnámskeiði
Pellentesque tempor. Sed rutrum ligula eu magna. Suspendisse vestibulum magna vitae velit. Aenean a augue eget libero dignissim ornare. Vestibulum arcu dolor, scelerisque id, egestas nec, blandit sed, dui. Sed et justo id pede mattis ornare. Vivamus pretium ultrices mauris. Vestibulum eleifend, velit non consectetur sodales, erat orci egestas diam, eu luctus risus magna non neque. Curabitur consectetur mi quis erat. Fusce dolor. Vestibulum vitae nunc et leo suscipit vehicula. Phasellus et lectus tempus urna semper ultrices.
Jólaskreytingar
4. desember næstkomandi mun Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin, í samstarfi við Blindrafélagið, halda tvö námskeið í gerð jólaskreytinga. Leiðbeinandi er Brynhildur Sigtryggsdóttir, eigandi Blóma- og gjafabúðarinnar á Sauðárkróki.
Förðun og góð ráð
Nemendur Snyrtiakademíunnar í Kópavogi kenna þátttakendum förðun og veita ráðleggingar um umhirðu húðar.
Bæklingurinn „Ég skrifa með punktum“ kominn út
Út er kominn bæklingurinn:
Ég skrifa með punktum
Áhugi ungra barna á bókstöfum, orðum og merkingu – snemmtæk örvun. Bæklingurinn er eftir danska ráðgjafann Jette Hasselström.
Námskeið fyrir kennara, stuðningsfulltrúa og starfsfólk leik- og grunnskóla
Hvernig komum við til móts við þarfir sjónskertra nemenda í skólakerfinu?
6. norræna ráðstefnan í sjónráðgjöf í Lundi í Svíþjóð
6. norræna ráðstefnan í sjónráðgjöf var haldin í Lundi í Svíþjóð dagana 13.-15. maí 2009. Rannveig Traustadóttir og Guðbjörg Árnadóttir frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga tóku þátt í ráðstefnunni fyrir Íslands hönd.
Matartækninámskeið
Miðvikudaginn 27.maí mun Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin standa fyrir matartækninámskeiði fyrir notendur miðstöðvarinnar. Námskeiðið fer fram í sal Blindrafélagsins á 2.hæð í Hamrahlíð 17 frá klukkan 10.00-14.00.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. um að www.midstod.is standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. um að vefurinn www.midstod.is standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Þetta er í samræmi við markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar að veita gott aðgengi og vera fyrirmynd annarra í þeim efnum.
Heimsókn starfsmanna á Samskiptamiðstöð fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta.
Hafið er samstarf Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar og Samskiptamiðstöðvar fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta í málefnum daufblindra.
Ný þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Þann 18. desember sl. samþykkti Alþingi Íslands lög um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og tóku þau gildi 1. janúar 2009.