Þjónustu- og þekkingarmiðstöð
fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Sjónstöðin, í samstarfi við Stuðningur til sjálfstæðis, sem er sjóður á vegum Blindrafélagsins og Blindravinafélagsins, býður á haustmánuðum upp á nám í kennslu í áttun og umferli. Nánar hér
Algeng atriði
Endurgreiðslur gleraugna
Til að sækja um endurgreiðslu vegna gleraugna þarf að fylla út eyðublað á vefnum. Fylgja þarf afrit af augnvottorði og sundurliðaða kvittun frá gleraugnaverslun.
Bæklingar
Þjónusta
Markmið Sjónstöðvarinnar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir eða sjónskertir til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra.
Samþætt sjón- og heyrnarskerðing
Umferli
Heilatengd sjónskerðing - CVI
CVI er sjónskerðing sem orsakast af skemmdum á sjónbraut og/eða sjónúrvinnslustöðvum í heilanum. Í flestum tilvikum gera börn með CVI sér ekki grein fyrir að sjónupplifun þeirra geti verið frábrugðin sjónupplifun annarra þar sem þau þekkja ekki annað.
nýjustu fréttir
Sjónstöðin fær styrk til að kaupa höfuðborin stækkunartæki
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti Sjónstöðinni nýverið 20 milljóna króna framlag vegna til að kaupa höfuðborin stækkunartæki

Nýútkomið kennsluhefti í notkun tölvulyklaborðs hjá HBS
Á vef Hljóðbókasafnsins má finna nýútkomið kennslu- og æfingahefti í notkun á tölvulyklaborði fyrir blinda og sjónskerta, eftir Ágústu Eir...
Umsóknir fyrir úthlutun leiðsöguhunda 2023
Á hverju ári fer fram úthlutun leiðsöguhunda til einstaklinga sem taldir eru, að undangengnu mati, geta nýtt sér hunda til aukins sjálfstæðis við...
Hnappabox fyrir gangandi vegfarendur við umferðarljós
Starfsmenn Sjónstöðvar áttu nýverið fund með þremur starfsmönnum Reykjavíkurborgar. Tilefni fundarins var að ræða virkni og samræmingu hnappaboxa á...
Alþjóðadagur punktaleturs
Í dag, 4. janúar er alþjóðlegur dagur punktaleturs. Þann 4. janúar 1809 fæddist Louis Braille í smábænum Coupvray í Frakklandi. Þegar hann var...
áhugavert efni
No Results Found
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
viðburðir
algengar spurningar
Ég sótti um endurgreiðslu á gleraugum en get ekki séð að greiðslan hafi borist
Allar gleraugnaendurgreiðslur koma frá Fjársýslu ríkisins og eru merktar „Ríkissjóður.“
Get ég sótt um hjálpartæki fyrir mig eða ættingja?
Einungis notendur Miðstöðvarinnar geta fengið úthlutað hjálpartækjum. Ekki er hægt að kaupa hjálpartæki hjá Miðstöðinni.
Geta fullorðnir fengið endurgreiðslu vegna gleraugnakaupa?
Fullorðnir eiga frá 18 ára aldri rétt á endurgreiðslum vegna eftirfarandi:
- Eru augasteinalausir (aphaki)
- Þurfa á prismagleraugum að halda vegna tvísýni
- Eru hánærsýnir (myopia gravis) ≥12,00
- Eru háfjarsýnir (microphathalmia) ≥10,00
- Eru með lausa augasteina (luxatio lentis)
- Þurfa að breyta gleraugnastyrk umtalsvert, að mati sérgreinalæknis í augnlækningum, vegna augnsjúkdóma eða skurðaðgerða, svo sem keiluglæru (keratoconus), eftir hornhimnuígræðslu eða nethimnulossaðgerð.
Hvað á að gera við hjálpartæki ef þau eru ekki lengur í notkun?
Miðstöðin lánar öll hjálpartæki og óskar því eftir að þeim sé skilað ef þau nýtast ekki lengur.
um stofnunina
Markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.