
Aðlagað lesefni
Á útgáfusviði Miðstöðvarinnar er prentaður texti aðlagaður að þörfum blindra og sjónskertra. Aðlögun efnis er mismunandi eftir þörfum notenda og efninu sjálfu, en getur meðal annars falið í sér:
- að setja upp bækur, leshefti eða stærðfræði með stækkuðu letri og velja auðlæsa leturgerð, yfirleitt Verdana eða Tahoma.
- að gera námsefni aðgengilegt fyrir punktaletursskjái og skjálesara.
- að prenta texta og bækur með punktaletri
- að útbúa upphleyptar skýringamyndir fyrir þá sem treysta á þreifiskyn
- að einfalda myndir og/eða draga úr áreitum í flóknum myndum
Á sviðinu starfa nokkrir sérfræðingar í gerð lesefnis en beiðnir um aðlögun lesefnis fara í gegnum skrifstofuna eða ráðgjafa Miðstöðvarinnar.