Laust er til umsóknar 100% starf iðjuþjálfa sem mun starfa við ráðgjöf hjá Sjónstöðinni -þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Sjónstöðin sinnir ráðgjöf, fræðslu og stuðningi með það að markmið að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Ráðgjöf og fræðsla í málaflokknum til notenda þjónustu og samstarfsaðila
-
Gerð þjónustuáætlana og eftirfylgni
-
Sjálfstæði í starfi
-
Mat á þörf á hjálpartækjum og kennsla.
-
Þátttaka í þverfaglegu samstarfi i teymum innan og utan stofnunarinnar
Hæfniskröfur
-
Starfsréttindi sem iðjuþjálfi.
-
Reynsla af vinnu með einstaklingum með sjónskerðingu og/eða samþætta- sjón og heyrnarskerðingu er kostur
-
Jákvætt viðmót, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
-
Rík þjónustulund
-
Góð færni í ritaðri og munnlegri íslensku og ensku.
-
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sjónstöðin hvetur jafnt karla sem konur til að sækja um þessa stöðu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Sjónstöðin er þjónustu- og þekkingarmiðstöði sem er ábyrg og framsækin stofnun sem veitir framúrskarandi heildstæða þjónustu með jafnrétti í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.06.2024
Nánari upplýsingar veitir
Vala Jóna Garðarsdóttir, vala.gardarsdottir@sjonstodin.is
Sími: 5455800